Bergþóra er glæný

Bergþóra lærði í LHÍ, Vínarborg og einhverjum dönskum smábæ sem enginn man hvað heitir. Hún er frá Dalvík, bænum sem aldrei vakir. Þar er safn Jóhanns risa, sjoppa, bensínstöð og Sæplast. Íbúafjöldi er 1.960 en þá hljóta allir í hreppnum að vera taldir með, ásamt brottfluttum.

Einu sinni á ári gerist eitthvað á Dalvík. Þá er fiskidagurinn mikli.