Við leitum að hæfileikamanneskju til starfa við að gefa dauðum hlutum rödd. Gera óljós skilaboð öllum skiljanleg. Breyta ófyndnu í fyndið og ljótu í flott. Gefa nöfn og segja sögur. Við gerum vinsælt, skemmtilegt, frægt, fallegt, ásættanlegt, eftirsóknarvert. Við gerum gott úr hlutum. Þetta er næstum aldrei auðvelt og oft beinlínis erfitt. Það er örugglega hægt að fá hærra kaup með minni fyrirhöfn. Þetta er vinna fyrir fólk sem hefur mikinn áhuga á vinnunni sinni.
Ef þú ert skrifandi, hugsandi manneskja og ef þig langar í alvöru að hafa áhrif á hugmyndir og hegðun annarra skaltu koma til okkar og gerast texta- og hugmyndasmiður á Jónsson & Le'macks auglýsingastofu.
Þú færð fjölbreytta vinnu við netmiðla og hefðbundnari auglýsingar.
Við fáum þig.
Þú ert ábyggilega frábær. Sannaðu það með því að leysa eftirfarandi smáverkefni og senda til okkar.
Þú mátt skila verkefnunum á því stafræna formi sem þér hentar
og senda fyrirspurnir á idnadarskald@jl.is. Vinsamlegast láttu upplýsingar um sjálfa/n þig fylgja.
Umsóknarfrestur er til 16. september.
1.
Af hverju ert þú vel til þess fallin/n að starfa við textagerð
á auglýsingastofu?
2.
Helgi Björns var að skrá sig á Twitter undir nafninu @helgibjosssegir.
Hvað myndi Helgi Björns segja?
3.
Hvernig myndi mamma þín lýsa þér? En fyrrverandi kærasta/kærasti?
4.
Stór verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu er að leita sér að nýju slagorði. Stjórnendur verslunarmiðstöðvarinnar vilja að slagorðið sé stutt, snjallt og spennandi. Í slagorðinu er mjög mikilvægt að fram komi hversu mikið úrval er af vörum og verslunum í verslunarmiðstöðinni. Hvað myndir þú leggja til?
5.
Vítisenglar vilja bæta ímynd sína á Íslandi. Þeir biðja þig um að skrifa fyrir sig auglýsingu sem þeir ætla að birta í öllum blöðum. Auglýsingin á að vera fyrirsögn og meginmál sem er minna en 30 orð.
6.
Þú ert beðin/n um að skrifa bók fyrir unglinga um sögu Íslands. Það er erfitt að halda athygli nútímaunglingsins og því má bókin ekki vera lengri en 100 orð. Hvernig myndi þín útgáfa hljóma?
7.
Hver er besta auglýsing sem þú hefur séð nýlega og af hverju?
Umsækjendur þurfa að hafa óvenjugóð tök á íslensku en er ekki mismunað eftir kyni, uppruna eða öðru sem er hæfni þeirra til að gegna starfinu óviðkomandi.