66°Norður
Lítið, skrýtið og skítkalt.
Það var skemmtileg tilviljun að íslenski veturinn gekk í garð sama dag og nýtt vefmagazine 66°Norður fór í loftið. Það er líkt og veturinn hafi haldið í sér þar til 66°Norður væri klárt með klæðnaðinn sem haldið hefur hita á Íslendingum síðan 1926.
Myndirnar eru teknar inni í gömlum frystiklefa í Sandgerði í -20 stiga frosti. Frystiklefinn er eins og smækkuð útgáfa af litla Íslandi, skrítinn og skítkaldur. Kuldinn kom þó ekki að sök og ekki væsti um fyrirsæturnar, þau Emil, Lottu, Tinnu og Darra, enda varin fyrir vetri frá toppi til táar.
Í vefmagazine-inu getur þú flett í gegnum mest spennandi vörurnar úr vetrarlínu 66°Norður og kynnt þér hverja vöru fyrir sig með því að draga músarbendilinn yfir hana. Í vefmagazine-inu má einnig skyggnast bakvið frystiklefahurðina og skoða myndbönd frá tökustað.


