66°Norður
Nú treysta þau á okkur
66°Norður vildi minna á mikilvægi þess að styrkja flugeldasölur Slysavarnarfélags Landsbjargar um áramótin. Í þeim tilgangi var neyðarblysinu beint að sjálfboðaliðum björgunarsveitanna. Til að vekja athygli á óeigingjörnu starfi sveitanna gerðum við stutt myndband um björgunarsveitina Kára í Öræfum. Þar kynntumst við Ármanni, Gunnari, Klaus og fleirum sem minntu okkur á að björgunarfólk þessa lands er venjulegt fólk. Það er nágranni þinn eða vinnufélagi, kaupmaðurinn á horninu, skólabílstjórinn eða þjónninn - fólk sem er tilbúið að hverfa frá daglegu amstri til að koma öðrum til hjálpar. 66°Norður hefur verið stoltur samstarfsaðili björgunarsveitanna frá árinu 1928 og hafa sjálfboðaliðar sveitanna klæðst fatnaði fyrirtækisins í yfir 80 ár. 66°Norður var því boðið og búið að veita björgunarsveitunum lið - er það ekki jú það sem góðir vinir gera?