Landsbankinn
Námuskipulagið
Námsmenn kannast eflaust við tilfinninguna að geta ekki hafið lestur fyrr en allt er komið á sinn stað, kaffibollinn kominn á borðið, eplið klárt ef ske kynni að blóðsykurfall hamlaði lestri, uppáhalds penninn við höndina og nokkrir mismunandi litir af glósupennum til taks - því allt þarf þetta að líta vel út. Til að sanna svo fyrir umheiminum hvað maður er nú með þetta allt á hreinu smellir maður mynd af herlegheitunum og deilir með vinunum á Facebook, Twitter, Instagram eða öðrum samfélagsmiðlum.
Námuskipulagið er ljósmyndakeppni þar sem þátttakendur senda inn mynd af námsskipulagi sínu. Þátttakendur hafa þrjár leiðir til þess að senda inn mynd: hægt er að senda myndina á Facebook vegg Námunnar, kassmerkja myndina sem #namuskipulag á Instagram eða senda hana sem viðhengi á namuskipulag@landsbankinn.is.
Innsendar myndir streyma inn á Tumblr síðuna http://namuskipulag.tumblr.com þar sem hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um leikinn. Allir sem taka þátt í leiknum fá Námu-vasabók - sem setur skipulagið í nýjar hæðir, og sá Námufélagi sem á besta skipulagið fær að launum iPad 2 - sem færir skipulagið í nýjar víddir.