TM
Þú veist aldrei hvað gerist næst!
Ása og Bjössi hittast fyrst árið 1983 og verða fljótt mestu mátar. Í auglýsingunum frá Tryggingarmiðstöðinni fáum við að fylgjast með vináttu þeirra vaxa og dafna fram til dagsins í dag. Því TM veit að gott samband verður betra með tímanum.
Danni og félagar hafa unnið ötullega að nýjustu herferð TM sem hefur vakið stormandi lukku. Tökur og úrvinnsla gengu eins og í sögu og fullyrðir Daníel að þess sé ekki lengi að bíða þar til að leikararnir Felix Flóki og Álfrún láti til sín taka á sviði leiklistar í framtíðinni.
Og sagan er langt í frá að vera á enda...